Um Zúista á Íslandi
Stjórn Zúista á Íslandi styður fullt og óskorað trúfrelsi á Íslandi. Í trúfrelsi felst réttur einstaklinga til að iðka hverja þá trú eða vera hluti af hvaða trúarbrögðum sem þeir kjósa, í einrúmi eða samneyti við aðra. Sama gildir um þá sem kjósa að lifa án trúar eða trúarbragða. Hver einstaklingur á að hafa rétt til að stofna félag um trúar- og lífsskoðun sína og reka félagið án allra afskipta yfirvalda eða annarra einstaklinga í samfélaginu. Hið opinbera á að fella úr gildi lög sem veita trú- og lífsskoðunarfélögum forréttindi og fjárstyrki umfram önnur félög og leggja einnig niður núverandi gagnagrunn yfir trúfélagaaðild landsmanna. Í anda þessarar yfirlýsingar munu Zúistar aldrei sækjast eftir neinum þeim forréttindum, sem trú- og lífsskoðunarfélög njóta annars. Félagsmenn í félagi Zúista geta valið um að fá sóknargjöld sín endurgreidd eða að þau renni til góðgerðarmála.
Að sjálfsögðu er engin krafa gerð til félaga í Zuism að þeir gefi upp trúarskoðanir sínar við inngöngu og er félagið opið öllum óháð trúarskoðunum. Stjórn Zúista mun aldrei skoða félagaskrá og lítur á hana sem trúnaðarupplýsingar, sbr. gr. 5 í lögum félagsins.
Um trúfélagið Zuism
Félagið Zuism hefur stöðu skráðs trúfélags samkvæmt lögum um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Ríkið leggur því ýmsar skyldur á herðar félaginu og skilyrði, sem félagið verður að uppfylla til að halda stöðu sinni. Þar sem stjórn Zúista berst gegn núverandi kerfi hyggst hún ekki nýta þau forréttindi sem ætluð eru opinberlega skráðum trúfélögum.

Um sóknargjaldagreiðslur
Zúistar vilja ekki vera byrði á ríkinu en vegna forréttinda trú- og lífsskoðunarfélaga er ljóst að það sitja ekki allir við sama borð. Frá 1987 hefur ríkið greitt ríkisstyrki til trúfélaga (og lífsskoðunarfélaga frá 2013), sem eru í raun nokkurs konar „frístundastyrkur“ fyrir fólk í trú- og lífsskoðunarfélögum (kölluðust sóknargjöld fram til 1987). Þessi ríkisstyrkur er ekki í boði fyrir fólk sem er í annars konar félögum en ekki í skráðum trú- eða lífsskoðunarfélögum. Fram til 2009 var ríkisstyrkurinn greiddur í Háskólasjóð fyrir þá einstaklinga sem ekki voru í skráðu trúfélagi en það ákvæði hefur verið fellt niður. Eina leiðin til að jafna stöðuna er því að greiða ríkisstyrkinn út til félagsmanna með lágmarkskostnaði. Félagið mun ekki sækjast eftir öðrum fyrirgreiðslum, sem trú- og lífsskoðunarfélögum stendur oft til boða, til dæmis í formi ókeypis lóða undir trúarbyggingar og skattfrelsis eða afsláttar af gjöldum.

Trúfélög eru skyldug til að bjóða upp á athafnir
Zúistar eru andvígir því að trúfélögum sé látið það vald í hendur að sjá um athafnir sem hafa lagalegt gildi. Þetta er hefð frá fyrri tíð en núna ættu þessir löggjörningar að sjálfsögðu einungis að vera í höndum löglærðra fulltrúa sýslumanna. Þriðja grein í lögum um skráð trú- og lífsskoðunarfélög krefst þess hins vegar að öll skráð trúfélög bjóði upp á tilteknar athafnir. Stjórn Zúista verður því að bjóða upp á athafnir sem eru í okkar tilfelli gifting og nafngjöf. Til að árétta þá skoðun að trúfélög eigi ekki að sjá um athafnir sem hafa lagalega þýðingu þá er verðskrá Zúista höfð í hærri kantinum þannig að ólíklegt sé að mikið verði leitað til félagsins. Allar tekjur af athöfnum á vegum félagsins munu renna óskiptar til góðgerðamála og enginn meðlimir fá laun eða aðrar greiðslur vegna athafna.

Verðskrá fyrir athafnir (gildir frá 1.11.2015)
Verð fyrir nafngjöf: 100 milljónir kr.
Verð fyrir giftingu: 100 milljónir kr.
Verð fyrir nafngjöf: 100 milljónir kr.
Verð fyrir giftingu: 100 milljónir kr.
Stjórn Zúista
Ísak Andri Ólafsson, forstöðumaður og „æðstiprestur“
Arnór Bjarki Svarfdal
Gunnhildur Gunnarsdóttir
Holger Páll Sæmundsson
Snæbjörn Guðmundsson
Sveinn Þórhallsson

Lög og reglur félags Zúista
Hér eru birtu helstu skjöl varðandi skráningu og skipulag trúfélagsins: